Gjúkabryggja

Nýtt í sölu

Komnar eru í sölu nýjar íbúðir í bryggjuhverfinu í Reykjavík. Um er að ræða hagkvæmar íbúðir fyrir ungt fólk og fyrstu kaupendur.

Á lóðinni eru fjórar byggingar með samtals 103 íbúðum og með sameiginlegum bílakjallara. Húsin ramma inn skjólgóðan garð, undir honum er bílageymsla fyrir 62 bíla en einnig eru 41 stæði ofanjarðar innan lóðar. Þannig að heildarfjöldi bílastæða innan lóðar eru 103 stæði. Einnig til viðbótar eru svo bílastæði utan lóðar í almenningsrými til notkunar fyrir hverfið sem heild og gesti.

Hús á vesturhluta lóðar er Gjúkabryggja 10-12. Það er með tveimur stigahúsum og er þriggja hæða. Það eru 9 íbúðir á hæð og als 27 íbúðir í húsinu.

Hús á suðurhluta lóðar er Buðlabryggja 25-27. Það er með tveimur stigahúsum og er þriggja hæða. Það eru als 23 íbúðir í húsinu.

Hús á norðurhluta lóðar er Endilsbryggja 24. Það er með einu stigahúsi, er fjögurra hæða og með 26 íbúðum.

Hús á austurhluta lóðar er Buðlabryggja 29-31. Það er þriggja hæða með tveimur stigahúsum og alls 27 íbúðum.

Allar íbúðir uppfylla skilyrði um hlutdeildarlán.

Smellið hér til að skoða sölusíðu verkefnisins


Íbúðir til sölu

Hringhamar 35-37

Verklýsing: Fjölbýlishúsin á lóðinni við Hringhamar 35-37 er tvö hús sem rísa upp úr sameiginlegum bílakjallara. Fjölbýlishúsin eru á 5 hæðum og geymslukjallari tilheyrir einnig hvoru húsi. Í húsunum er 46 íbúðir, í bílakjallara eru bílastæði fyrir 33 bíla og stæði fyrir 28 bíla á lóðinni.

Ýtið hér til að skoða sölusíðu verkefnisins

Íbúðirnar eru tilbúnar til afhendingar